Fagmennska með persónulegri nálgun.
Sedda er bókhalds- og fjármálaþjónusta fyrir fyrirtæki og rekstraraðila sem vilja hafa fjármálin í lagi og skýra mynd af stöðunni.

Hugmyndafræði
Að einfalda fjármál rekstraraðila.
Markmið okkar er að taka af þér þau verkefni sem tengjast bókhaldi og fjármálum og veita þér þann stuðning sem þú þarft til að einbeita þér að eigin starfsemi.
Það sem við leggjum áherslu á.
Nákvæmni
Tölurnar þurfa að vera réttar. Við vinnum skipulega, stemmum af reglulega og látum vita ef eitthvað þarfnast athygli.
Skýr samskipti
Við útskýrum stöðuna á mannamáli og svörum spurningum þegar þær vakna, ekki aðeins við árslok.
Fyrirsjáanleiki
Verkefni, skil og tímafrestir eru skipulögð fyrir fram svo ekkert komi á óvart.
Trúnaður
Fjárhagsupplýsingar fyrirtækja eru viðkvæmar. Við förum með þær af ábyrgð og virðingu.
Samstarfið
Fast fólk sem þekkir reksturinn þinn.
Gott samstarf byggir á því að þekkja fyrirtækið. Við gefum okkur tíma til að skilja starfsemina, hvernig gögn berast og hvaða upplýsingar skipta þig mestu máli.
Þannig getum við unnið verkin vel, bent á það sem betur má fara og verið til staðar þegar spurningar vakna um laun, skil eða stöðu rekstrarins.
Hvernig hefst samstarfið?
Skref 1: Við kynnumst
Við ræðum fyrirtækið þitt, núverandi stöðu og hvaða aðstoð þig vantar.
Skref 2: Við finnum réttu lausnina
Við skilgreinum umfang þjónustunnar og fyrirkomulag samstarfsins.
Skref 3: Við hefjum samstarf
Við skipuleggjum verkefnin og tökum við þeim í samræmi við samkomulag.
Ræðum þinn rekstur.
Hvort sem þig vantar aðstoð við daglegt bókhald eða víðtækari fjármálaþjónustu viljum við heyra frá þér.
Hefjum samstarf