Fara beint í efni
SeddaSnorra Edda

Ársuppgjör og ársreikningar

Ársuppgjörið dregur saman árið í rekstrinum. Við förum yfir bókhaldið, stemmum af og undirbúum uppgjörið svo ársreikningur og skattframtal byggi á traustum grunni.

Umfangið fer eftir þörfum hvers fyrirtækis og er ákveðið í samtali.

Senda fyrirspurn

Hvað felst í þjónustunni

Yfirferð bókhalds

Heildaryfirferð á bókhaldi ársins þar sem leitað er að villum og ósamræmi.

Afstemmingar

Bankar, viðskiptamenn, birgjar og efnahagsliðir stemmdir af við árslok.

Undirbúningur ársuppgjörs

Uppgjörsfærslur, mat á eignum og skuldum og frágangur bókhalds.

Ársreikningar og skattframtöl

Gerð ársreiknings og skattframtals eftir því umfangi þjónustu sem samið er um.

Fyrir hverja hentar þjónustan?

  • Fyrirtæki sem færa bókhaldið sjálf en vilja aðstoð við uppgjör
  • Fyrirtæki sem Sedda sér um bókhald fyrir
  • Sjálfstætt starfandi einstaklingar
  • Fyrirtæki sem eru að ljúka sínu fyrsta rekstrarári

Ávinningur fyrir reksturinn

Uppgjör á traustum grunni
Afstemmt bókhald gefur rétta mynd af árinu.
Minna álag við árslok
Skipulögð vinnubrögð koma í veg fyrir kapphlaup við skiladaga.
Betri byrjun á nýju ári
Niðurstöður uppgjörsins nýtast við að skipuleggja næsta ár.

Spurningar um ársuppgjör

Hvenær er best að hefja undirbúning ársuppgjörs?

Því fyrr, því betra. Gott er að bókhald ársins sé fært og afstemmt áður en árið er gert upp.

Getið þið gert uppgjör ef aðrir hafa fært bókhaldið?

Í mörgum tilvikum já. Við förum fyrst yfir bókhaldið og metum hvað þarf til að ljúka uppgjörinu.

Hvaða gögn þarf ég að leggja fram?

Meðal annars bankayfirlit, upplýsingar um eignir og skuldir, birgðastöðu ef við á og önnur gögn sem tengjast rekstri ársins.

Önnur þjónusta

Tengd þjónusta og efni

Ræðum þinn rekstur.

Hvort sem þig vantar aðstoð við daglegt bókhald eða víðtækari fjármálaþjónustu viljum við heyra frá þér.

Hefjum samstarf