VSK-uppgjör og skil
Virðisaukaskattur kallar á nákvæmni og reglu. Við förum yfir innskatt og útskatt, stemmum af við bókhaldið og undirbúum skil á réttum tíma.
Markmiðið er einfalt: að uppgjörið sé rétt og að þú þurfir ekki að hugsa um skiladaga.
Hvað felst í þjónustunni
VSK-uppgjör
Uppgjör virðisaukaskatts fyrir hvert uppgjörstímabil.
Yfirferð innskatts og útskatts
Farið yfir að skattur sé rétt reiknaður og að innskattur sé aðeins tekinn þar sem heimild er fyrir honum.
Afstemmingar
VSK-uppgjörið stemmt af við bókhaldið áður en skilað er.
Undirbúningur og umsjón með skilum
Skýrslur undirbúnar og skilum fylgt eftir innan tímamarka.
Fyrir hverja hentar þjónustan?
- Fyrirtæki á virðisaukaskattsskrá
- Nýskráð fyrirtæki sem skila VSK í fyrsta sinn
- Verslanir og netverslanir með mikinn fjölda færslna
- Fyrirtæki með sölu í fleiri en einu skattþrepi
Ávinningur fyrir reksturinn
- Skil innan tímamarka
- Skiladagar eru á okkar dagatali, ekki þínu.
- Færri leiðréttingar
- Afstemming fyrir skil dregur úr líkum á leiðréttingum eftir á.
- Skýr staða
- Þú veist hver VSK-staðan er og hvað er fram undan.
Spurningar um vsk og skil
Hversu oft þarf að skila VSK?
Almennt er skilað á tveggja mánaða fresti, en það getur verið breytilegt eftir umfangi og eðli rekstrar. Við förum yfir hvað á við um þitt fyrirtæki.
Þarf fyrirtækið mitt að vera á virðisaukaskattsskrá?
Það fer eftir eðli starfseminnar og veltu. Við getum farið yfir það með þér.
Getið þið aðstoðað ef skil hafa dregist?
Við getum farið yfir stöðuna með þér og metið hvað þarf að gera til að koma skilum í rétt horf.
Ræðum þinn rekstur.
Hvort sem þig vantar aðstoð við daglegt bókhald eða víðtækari fjármálaþjónustu viljum við heyra frá þér.
Hefjum samstarf