Fjármálaráðgjöf fyrir rekstraraðila
Góðar ákvarðanir byggja á réttum upplýsingum. Við greinum reksturinn, setjum upp áætlanir og hjálpum þér að skilja hvað tölurnar segja um stöðuna og næstu skref.
Ráðgjöfin getur verið afmarkað verkefni eða hluti af reglulegu samstarfi.
Hvað felst í þjónustunni
Rekstrargreining
Greining á tekjum, kostnaði og afkomu til að skilja hvar reksturinn stendur.
Fjárhagsáætlanir
Raunhæfar áætlanir sem byggja á gögnum úr rekstrinum.
Sjóðstreymisáætlanir
Yfirsýn yfir hvenær fjármunir koma inn og fara út, svo hægt sé að bregðast við í tíma.
Kostnaðargreining
Kortlagning kostnaðar og greining á því hvar hægt er að gera betur.
Framlegðargreining
Greining á framlegð eftir vörum, þjónustu eða verkefnum.
Stuðningur við ákvarðanatöku
Fjárhagsleg sjónarmið dregin fram þegar stærri ákvarðanir eru teknar.
Fyrir hverja hentar þjónustan?
- Stjórnendur sem vilja skilja reksturinn betur
- Fyrirtæki sem standa frammi fyrir fjárfestingu eða breytingum
- Rekstur þar sem afkoman hefur ekki verið í takt við væntingar
- Fyrirtæki í vexti sem þurfa að skipuleggja fram í tímann
Ávinningur fyrir reksturinn
- Skýrari mynd af rekstrinum
- Þú sérð hvaða þættir skila afkomu og hverjir ekki.
- Áætlanir sem nýtast
- Áætlanir sem byggja á raunverulegum gögnum og hægt er að fylgja eftir.
- Ákvarðanir byggðar á gögnum
- Stærri skref eru tekin með fjárhagslegar afleiðingar í huga.
Spurningar um fjármálaráðgjöf
Þarf ég að vera í bókhaldsþjónustu hjá ykkur til að fá ráðgjöf?
Nei, ráðgjöfin getur verið sjálfstæð. Ef bókhaldið er fært annars staðar þurfum við aðgang að þeim gögnum sem greiningin byggir á.
Hvernig fer ráðgjöfin fram?
Við byrjum á samtali um stöðuna og markmiðin, förum svo yfir gögnin og kynnum niðurstöður og tillögur.
Er ráðgjöf afmarkað verkefni eða samfellt samstarf?
Hvort tveggja er mögulegt. Sum verkefni eru afmörkuð, önnur kalla á reglulega eftirfylgni.
Ræðum þinn rekstur.
Hvort sem þig vantar aðstoð við daglegt bókhald eða víðtækari fjármálaþjónustu viljum við heyra frá þér.
Hefjum samstarf